Fotbolti.net
16.08.26 - 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man City í viðræðum við Lille - Inter reynir að fjármagna kaup á Curtis Jones

Ayyoub Bouaddi

Ayyoub Bouaddi

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Rodri, Curtis Jones, Zion Suzuki, Cody Gakpo, Ayyoub Bouaddi og fleiri koma við sögu.
Aston Villa er í viðræðum um kaup á japanska markverðinum Zion Suzuki frá Parma eftir að félagaskipti þessa 23 ára gamla leikmanns til PSG urðu að engu. (Talksport)

Áhugi Aston Villa á Suzuki gefur Juventus meiri von um að næla í Emiliano Martinez (33), markvörð enska liðsins. (Football Italia)

Arsenal verður að bjóða rúmlega 60 milljónir punda til að eiga möguleika á að næla í nígeríska framherjann Victor Osimhen (27) frá Galatasaray í sumar. (Football Insider)

Barcelona trúir því að þriðja tilboðið sem hljóðar upp á 70 milljónir evra fyrir Rodri sé nóg til að sannfæra Man City til að selja spænska miðjumanninn. (AS)

Man City er í viðræðum við Lille um kaup á Ayyoub Bouaddi, 18, en franska félagið vill fá að minnsta kosti 85 milljónir fyrir hann. (Telegraph)

Newcastle hefur hafið viðræður um kaup á Joao Palhinha (31), miðjumann Bayern, aftur. Aston Villa og Benfica hafa einnig áhuga á portúgalska miðjumanninum. (Mail)

Inter vill selja brasilíska vængmanninn Luis Henrique (24), til að fjármagna kaup á Curtis Jones (25), miðjumanni Liverpool, sem er talinn falur fyrir 40 milljónir evra. (Corriere dello Sport)

Chelsea vill fá 60 milljónir punda fyrir Nicolas Jackson. Aston Villa, Tottenham og Atletico Madrid hafa áhuga á senegalska framherjanum (25). (RMC Sport)

Liam Delap, (23), framherji Chelsea vill vera áfram í úrvalsdeildinni þrátt fyrir áhuga frá Como. Newcastle og Everton fylgjast einnig með honum. (Talksport)

Cody Gakpo (27), hefur gert Liverpool ljóst fyrir að hann vilji fara frá félaginu og fara til Tottenham. (Teamtalk)

Benfica hefur áhuga á enska varnarmanninum Tosin Adarabioyo (28), sem hefur fallið niður goggunnarröðina hjá Chelsea. (Caught Offside)
Curtis Jones

Curtis Jones

Canon

Mynd: EPA

Rodri

Rodri

Canon

Mynd: EPA

Zion Suzuki

Zion Suzuki

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.