Fotbolti.net
16.08.26 - 17:43
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham

Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham
Canon

Mynd: West Ham

Burnley 2 - 2 West Ham
0-1 Max Kilman ('10 )
0-2 Manor Solomon ('72 )
1-2 Zian Flemming ('83 , víti)
2-2 Zian Flemming ('92)
Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham
TENGT EFNI

Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham

Burnley og West Ham United áttust við í seinni leik dagsins í Championship deildinni á Englandi eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Gestirnir frá London náðu forystunni á tíundu mínútu, þegar varnarjaxlinn Max Kilman skallaði hornspyrnu frá Jarrod Bowen í netið í jöfnum og tíðindalitlum fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikurinn hélt áfram í svipuðu fari þar til Manor Solomon tvöfaldaði forystuna eftir frábæran undirbúning frá Mohamadou Kanté.

Heimamenn voru ekki á því að gefast upp en þeir áttu í erfiðleikum með að skapa sér hættuleg færi þar til Marcus Edwards var tæklaður innan vítateigs og skoraði Zian Flemming örugglega af vítapunktinum.

Burnley sendi marga menn fram á lokamínútunum og skilaði það sér með jöfnunarmarki eftir hornspyrnu í uppbótartíma. Boltinn datt til Flemming sem kláraði með marki og var hetja Burnley í dag.

Liðin áttust við í fyrstu umferð á nýju tímabili.
Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham
Canon

Mynd: Burnley

Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.