15.08.26 - 21:16
Kári Snorrason
Musiala hneig niður í miðjum leik

Íþróttastjóri Bayern sagði í viðtali eftir leik að Musiala væri á batavegi og liði vel.

Mynd: EPA

Gengur sjálfur af velli.

Það vakti mikinn óhug þegar Jamal Musiala hneig skyndilega niður í æfingaleik Bayern München gegn RB Leipzig í dag.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Bayern og Musiala skoraði þriðja mark liðsins á 81. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar virtist hann verða fyrir miklum svima.
Ismael Saibari, sem lagði upp mark Musiala, áttaði sig fljótt á því að eitthvað væri að og greip utan um Þjóðverjann áður en hann féll til jarðar. Læknalið Bayern kom þá inn á völlinn og hlúði að Musiala.

Ekki liggur alveg fyrir hvað olli því að Musiala hneig niður, en mikill hiti var í Munchen þegar leikurinn fór fram, um 33 gráður. Þýskir miðla segja að hann hafi fundið fyrir svima vegna hitans.
Max Eberl, íþróttastjóri Bayern, kom með þær góðu fréttir í viðtali eftir leik að Musiala væri í lagi og sagði Eberl að honum liði vel.

????????????????????????????????????: Jamal Musiala briefly fainted due to the heat but suffered no injury. ????????
— FÚTBOL HUB (@FutbolHub_) August 15, 2026
Saibari reacted quickly and provided immediate help, ensuring Musiala was okay. ?????? pic.twitter.com/59L7oVHxK8

Gengur sjálfur af velli.

Mynd: EPA

Mynd: EPA