16.08.26 - 13:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brynjólfur skoraði í öruggum sigri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brynjólfur Willumsson var á skotskónum þegar Groningen vann öruggan 4-1 sigur á Den Haag í hollensku deildinni í dag.
Brynjólfur skoraði annað mark liðsins. Hann slapp einn í gegn og klobbaði markvörð Den Haag. Groningen er í 2. sæti með sex stig eftir tvær umferðir.

Logi Hrafn Róbertsson var ekki með Varnamo í 1-1 jafntefli gegn Ostersund í næst efstu deild í Svíþjóð. Varnamo er í 14. sæti með 18 stig eftir 19 umferðir.
Sindri Kristinn Ólafsson var í markinu hjá Vasalund sem gerði 1-1 jafntefli gegn Pitea í sænsku C-deildinni. Vasalund er í 10. sæti með 20 stig eftir 17 umferðir.
Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover, var í byrjunarliðinu þegar liðið tapaði gegn Wolfsburg 1-0 í næst efstu deild í Þýskalandi. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 87. mínútu. Hannover er án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Adam ingi Benediktsson var í byrjunarliði AB Kaupmannahöfn í 3-0 sigri á Vendsyssel í næst efstu deild í Danmörku. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB. Liðið er í 7. sæti með 5 stig eftir fjórar umferðir.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem vann OB 2-1 í efstu deild. Horsens er í 7. sæti með fjögur stig eftir fjórar umferðir.
Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson voru í byrjunarliði Gautaborg í 3-0 tapi gegn Degerfors í efstu deild í Svíþjóð. Samkvæmt einkunnargjöf Flashscore var Hjörtur besti maður liðsins. Gautaborg er í 12. sæti með 19 stig eftir 17 umferðir.