16.08.26 - 17:25
Ívan Guðjón Baldursson
Bayern hafnaði tilboði Aston Villa

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ensk úrvalsdeildarfélög hafa áhuga á portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha sem er á sölulista hjá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

TENGT EFNI
Aston Villa í viðræðum við Bayern
Palhinha, sem lék á láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð, er 31 árs gamall og með tvö ár eftir af samningi. Bayern vill selja leikmanninn og ætlar ekki að lána hann út nema með kaupskyldu.
Aston Villa reyndi að fá Palhinha á láni með kaupmöguleika en stjórn Bayern hafnaði því strax.
Newcastle United hefur einnig áhuga á Palhinha til að styrkja miðsvæðið sitt. Talið er að Portúgalinn sé spenntur fyrir að spila áfram í úrvalsdeildinni en Benfica hefur einnig mikinn áhuga í heimalandinu.
Bayern er reiðubúið til að selja Palhinha fyrir um 25 milljónir evra.