Byrjunarlið FH og Víkings: Guðmundur Andri byrjar fyrir FH
FH gera þrjár breytingar - Víkingar gera tvær

Guðmundur Andri Tryggvason byrjar fyrir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Andri Tryggvason byrjar fyrir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tekur á móti Íslandsmeisturum Víkinga á Kaplakrikavelli klukkan 18:00 í dag þegar 19. umferð Bestu deild karla heldur áfram göngu sinni.
FH eru taplausir í síðustu níu umferðum og bíður þeirra líklega stærsta prófraunin til þessa í kvöld þegar Íslandsmeistararnir mæta í heimsókn. Víkingar hafa verið að hiksta örlítið upp á síðkastið svo það má búast við hörku leik hér í kvöld.
FH gera þrjár breytingar á liði sínu sem vann KA í síðustu umferð. Inn koma Grétar Snær Gunnarsson, Guðmundur Andri Tryggvason og Arngrímur Bjartur Guðmundsson fyrir Jóhannes Kristinn Bjarnason, Tómas Orra Róbertsson og Arnór Borg Guðjohnsen.
Víkingar gera þá tvær breytingar á sínu liði frá sigurleiknum gegn Thun á fimmtudaginn. Inn koma Nikolaj Hansen og Davíð Örn Atlason fyrir Aron Elís Þrándarson og Karl Friðleif Gunnarsson.
Byrjunarlið FH
- 1. Jökull Andrésson (m)
- 2. Birkir Valur Jónsson
- 5. Oliver Stefánsson
- 6. Grétar Snær Gunnarsson
- 7. Kjartan Kári Halldórsson
- 10. Sverrir Páll Hjaltested
- 11. Guðmundur Andri Tryggvason
- 14. Adolf Daði Birgisson
- 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
- 37. Baldur Kári Helgason
- 38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 4. Peter Oliver Ekroth (f)
- 6. Gunnar Vatnhamar
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 23. Nikolaj Andreas Hansen
- 24. Davíð Örn Atlason
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 69. Ármann Ingi Finnbogason
- 77. Stígur Diljan Þórðarson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | KR | 18 | +25 | 39 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 7 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
