Fotbolti.net
16.08.26 - 13:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tottenham gerði jafntefli - Liverpool spilar tvisvar við Como í dag

Tottenham gerði jafntefli - Liverpool spilar tvisvar við Como í dag
Canon

Mynd: EPA

Tottenham gerði 2-2 jafntefli gegn Hoffenheim í æfingaleik í dag. Liðin mættust einnig í gær þar sem Tottenham vann 3-0.

Yngri leikmenn fengu tækifæri hjá Tottenham í dag. Hoffenheim komst yfir en reynsluboltinn Ben Davies jafnaði metin. Hinn 17 ára gamli Luca Williams-Barnett kom Tottenham síðan yfir en Valentin Gendrey jafnaði metin og 2-2 urðu lokatölur.
Liverpool gerði markalaust jafntefli gegn Como. Leikmenn á borð við Wataru Endo, Kostas Tsimikas, Alexis Mac Allister, Victor Munoz og Federico Chiesa voru í byrjunarliðinu.

Liðin mætast aftur klukkan 17 í dag og spurning hvort Andoni Iraola mæti með sterkara lið til leiks þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.