Fotbolti.net
16.08.26 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal og Mbappé á skotskónum

Yamal og Mbappé á skotskónum
Canon

Mynd: EPA

Spænsku stórveldin Barcelona og Real Madrid mættu til leiks í dag þar sem þau léku æfingaleiki, en fyrsta umferðin á nýju deildartímabili hefst um næstu helgi.
Barcelona skoraði fimm mörk í sigri á Basel þar sem Karim Adeyemi gerði fyrsta mark leiksins en staðan var 1-1 í leikhlé.

Táningurinn Hamza Abdelkarim kom inn af bekknum og endurheimti forystu Börsunga áður en Lamine Yamal fékk að spreyta sig. Yamal tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu og lagði svo upp annað mark í skemmtilegum 5-2 sigri.

Hinn 18 ára gamli Jesse Bisiwu kom inn af bekknum undir lokin og setti tvennu til að innsigla sigur Spánarmeistaranna.

Kylian Mbappé var þá í byrjunarliði Real Madrid og skoraði fyrsta markið í 3-0 sigri á Schalke. Dean Huijsen tvöfaldaði svo forystuna áður en nýi framherjinn Carlos Espí kom inn af bekknum og innsiglaði sigurinn. Arda Güler og Álvaro Carreras áttu stoðsendingar.

Real heimsækir Espanyol í fyrstu umferð á nýju tímabili undir stjórn José Mourinho, á meðan Barca kíkir til Elche.

Basel 2 - 5 Barcelona
0-1 Karim Adeyemi ('31)
1-1 Jean Doucoure ('43)
1-2 Hamza Abdelkarim ('49)
1-3 Lamine Yamal ('81, víti)
2-3 K. Olaigbe ('84, víti)
2-4 Jesse Bisiwu ('89)
2-5 Jesse Bisiwu ('91)

Schalke 0 - 3 Real Madrid
0-1 Kylian Mbappe ('6)
0-2 Dean Huijsen ('20)
0-3 Carlos Espi ('57)
Yamal og Mbappé á skotskónum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.