16.08.26 - 09:30
Kári Snorrason
39 ára Belgi nálægt því að taka við Skotlandi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sebastien Pocognoli er sagður vera nálægt því að taka við sem nýr landsliðsþjálfari Skotlands. Þessi 39 ára Belgi lét af störfum sem stjóri Monaco eftir síðasta tímabil.
Hann var aðeins eitt ár við stjórnvölinn hjá Monaco en tímabilið áður stýrði hann Union Saint-Gilloise til fyrsta deildarmeistaratitils félagsins í 90 ár.
Hann á að baki 13 landsleiki fyrir Belgíu og lék meðal annars með West Bromwich Albion, Brighton og Hannover sem leikmaður.
Steve Clarke sagði starfi sínu lausu eftir HM og lauk þar með sjö ára stjóratíð sinni.
Pocognoli yrði aðeins annar erlendi landsliðsþjálfari Skotlands á eftir Þjóðverjanum Berti Vogts sem stýrði liðinu 2002 til 2004.