Fotbolti.net
16.08.26 - 16:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ödegaard: Viljum vinna allt

Ödegaard: Viljum vinna allt
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal unnu sannfærandi 3-0 sigur á Man City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag. Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, er staðráðinn í að vinna úrvalsdeildina annað árið í röð.
„Við sýndum hvað við getum. Sýndum að við erum tilbúnir og er alvara, við viljum vinna aftur. Það eru fleiri titlar í boði og það er markmiðið," sagði Ödegaard.

„Við viljum vinna úrvalsdeildina aftur. Þetta var magnað afrek og mikil reynsla fyrir okkur alla. Þegar þú færð smjörþefinn af þessu viltu gera þetta aftur. Það eru nokkrir í viðbót sem við viljum vinna."

Ödegaard vill vinna Meistaradeildina í ár en liðið tapaði gegn PSG í úrslitum á síðustu leiktíð.

„Hjá þessu félagi viltu vinna alla, hann er sá stóri. Við viljum vinna allt. Horfum á föstudaginn núna og byrjum vonandi vel í deildinni," sagði Ödegaard að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.