mán 16. nóvember 2020 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Coote í VAR-herberginu er Liverpool mætir Leicester
David Coote verður í VAR-herberginu
David Coote verður í VAR-herberginu
Mynd: Getty Images
Liverpool og Leicester City eigast við í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en það er ljóst hvaða dómarar koma að því verkefni.

Chris Kavanagh verður á flautunni í leiknum á meðan David Coote verður honum til aðstoðar í VAR-herberginu á Stockley Park.

Coote var í VAR-herberginu er Liverpool gerði 2-2 jafntefli við Everton í nágrannaslag í síðasta mánuði. Hann var sendur í kælingu og var fjórði dómari í leik Manchester City og West Ham í umferðinni á eftir.

Það áttu sér stað nokkur umdeild atvik í þeim leik en þar má meðal annars nefna stórhættulega tæklingu Jordan Pickford á Virgil van Dijk.

Pickford fékk ekki spjald fyrir atvikið og er Van Dijk þá frá út meirihluta tímabilsins. Coote vissi ekki að hann mætti skoða þetta vafasama atvik þar sem hann var nú þegar að skoða mögulega rangstöðu á Van Dijk.
Athugasemdir
banner