Fotbolti.net
16.12.13 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Liverpool og Man City með fjóra

Zabaleta er í vörninni.

Zabaleta er í vörninni.

Canon

Mynd: Getty Images

Lið umferðarinnar í enska boltanum þessa helgina er stillt saman með leikmönnum úr einungis þremur liðum.

Liverpool á fjóra menn eftir 5-0 sigurinn á Tottenham í gær og Manchester City á einnig fjóra menn eftir 6-3 sigurinn á Arsenal.

Manchester United á síðan þrjá fulltrúa eftir 3-0 sigurinn á Aston Villa á útivelli.

Hér að neðan má sjá liðið sem Garth Crooks hjá BBC valdi að þessu sinni en um er að ræða sókndjarft lið í kerfinu 4-1-3-2.


Markvörður - Costel Pantilimon (Manchester City)
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk þá kemst Pantilimon í lið helgarinnar. Hann varði meðal annars frábærlega frá Jack Wilshere í leiknum gegn Arsenal.

Varnarmaður - Pablo Zabaleta (Manchester City)
Zabaleta var frábær í sigri Manchester City á Arsenal og var duglegur að hjálpa til í sókninni eins og vanalega.

Varnarmaður - Jon Flanagan (Liverpool)
Flanagan stóð vaktina vel í vinstri bakverði Liverpool gegn Tottenham og kórónaði leik sinn með fallegu marki.

Varnarmaður - Phil Jones (Manchester United)
Jones spilaði í hjarta varnarinnar gegn Aston Villa og steig ekki feilspor.

Varnarmaður - Martin Skrtel (Liverpool)
Skrtel átti góðan leik gegn Tottenham sem náði ekki skoti á markið allan leikinn.

Miðjumaður - Fernandinho (Manchester City)
Fernandinho er farinn að finna sig betur og betur í enska boltanum og hann átti stóran þátt í því að City hafði yfirhöndina á miðjunni gegn Arsenal.

Miðjumaður - Jordan Henderson (Liverpool)
Henderson skoraði og spilaði einn sinn besta ef ekki besta leik fyrir Liverpool gegn Tottenham.

Miðjumaður - Wayne Rooney (Manchester United)
Rooney stjórnaði umferðinni á Villa Park og hjálpaði United að vinna sannfærandi sigur.

Framherji - Danny Welbeck (Manchester United)
Welbeck stimplaði sig inn með því að skora tvö mörk með stuttu millibili gegn Villa.

Framherji - Sergio Aguero (Manchester City)
Aguero gaf tóninn gegn Arsenal með marki snemma leiks og Argentínumaðurinn kom varnarmönnum gestanna í alls konar vandræði í leiknum.

Framherji - Luis Suarez (Liverpool)
Suarez skoraði tvö og lagði upp þrjú gegn Tottenham. Magnaður leikur hjá Úrúgvæanum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Welbeck skoraði tvö og er í liðinu.

Welbeck skoraði tvö og er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Suarez er í liðinu eins og svo oft áður í vetur.

Suarez er í liðinu eins og svo oft áður í vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.