Fotbolti.net
17.02.21 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Heimildarmynd um Ferguson kemur út í sumar

Sir Alex Ferguson er 79 ára gamall.

Sir Alex Ferguson er 79 ára gamall.

Canon

Mynd: Getty Images

Amazon Prime mun í sumar taka til sýningar heimildarmynd um Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóra Manchester United.

Myndin, sem ber nafnið Sir Alex Ferguson: Never Give In, er væntanleg 29. maí en hún mun einnig vera sýnd í kvikmyndahúsum.
Jason, sonur Sir Alex, leikstýrir heimildarmyndinni en þar má meðal annars sjá myndefni sem ekki hefur verið birt opinberlega áður.

Fjölskylda Ferguson tjáir sig um þennan magnaða stjóra í mydinni og þar eru einnig viðtöl við Eric Cantona, Ryan Giggs og Gordon Strachan.

Manchester United varð þrettán sinnum enskur meistari undir stjórn Ferguson en hann stýrði liðinu frá 1986 til 2013.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.