Jóhannes Kristinn Bjarnason er í nítján manna leikmannahópi Norrköping sem mætir Varberg í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi sextán ára gamli leikmaður er valinn í aðalliðshóp Norrköping.
Í fyrra lék hann einn leik með KR í Pepsi Max-deildinni, þá fimmtán ára gamall, en faðir hans er Bjarni Guðjónsson sem starfar sem unglingaþjálfari hjá Norrköping.

Ísak Bergmann Jóhannesson er einnig í leikmannahópnum en Ari Freyr Skúlason er á meiðslalistanum.
Norrköping er í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar eftir sex umferðir en leikurinn í dag hefst 16:30 að íslenskum tíma.
Athugasemdir