Byrjunarliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar handtekinn vegna gruns um veðmálasvindl

Elye Wahi

Mynd: EPA

Wahi í leik með Nice

Mynd: EPA

Elye Wahi

Mynd: EPA
Elye Wahi, framherji Eintracht Frankfurt og Fílabeinsstrandarinnar, var handtekinn vegna gruns um veðmálasvindl rétt fyrir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, en það er Athletic sem segir frá.
Samkvæmt heimildum Athletic var Wahi, sem er 23 ára gamall, handtekinn tveimur vikum fyrir heimsmeistaramótið.
Hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Nice í Frakklandi, en er grunaður um að hafa viljandi fengið gult spjald í leik gegn Metz þann 17. maí síðastliðinn.
Í kjölfarið var hann handtekinn þann 29. maí, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa hjálpað Nice að halda sér uppi með tveimur mörkum í umspilseinvíginu gegn St. Etienne.
Wahi ferðaðist með landsliði Fílabeinsstrandarinnar til Bandaríkjanna í byrjun júní og var í byrjunarliðinu í 1-0 sigri liðsins á Ekvador í fyrsta leik þjóðanna á HM.
Rannsókn franska fótboltasambandsins hófst eftir að sambandinu bárust upplýsingar um fjölda veðmála á að Wahi fengi gult spjald í leiknum.
Hann fékk gult spjald á 35. mínútu eftir seina tæklingu á Sadibou Sané. Aðeins nokkrum mínútum áður hafði hann farið í tæklingu á Bouna Sarr, en sloppið við spjald.
Athletic greindi frá því í síðasta mánuði að tveir leikmenn á heimsmeistaramótinu væru til rannsóknar vegna gruns um veðmálasvindl og nú hefur verið staðfest að Wahi sé annar þeirra.
Wahi hefur ekki verið ákærður og er því frjálst að ferðast, en næsti leikur Fílabeinsstrandarinnar er gegn Þýskalandi í Kanada. Kanadísk yfirvöld neituðu Thomas Partey á dögunum um inngöngu í landið vegna nauðgunarákæra á Englandi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Wahi kemst í kast við neikvæða umræðu utan vallar. Hann var rekinn úr akademíu franska félagsins Caen eftir alvarlegt agabrot og þá kærði ung kona hann fyrir líkamsárás árið 2021, en það mál var síðar látið niður falla.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!