Heimir: Gerðum allt til að láta Grindavík jafna


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Grindavíkur og Fylkis fór fram í 9. umferð Lengjudeildar karla á Stakkavíkurvellinum í dag. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Heimi Guðjónsson, þjálfara Fylkis, eftir leikinn.
„Við reyndum að spila vel en Grindavík er gríðarlega vel skipulagt lið og sterkir varnarlega. Við sköpuðum einhver færi en náðum ekkert að opna þá neitt og Kári reddaði okkur í lokin.''
Fylkisliðið náði ekki að loka leiknum vel eftir mark þeirra en þetta gekk þó hjá þeim fyrir rest og fóru þeir með 0-1 sigur af hólmi.
„Það voru mikil vonbrigði síðustu tíu mínútur leiksins þá gerðum allt í staðinn fyrir að loka leiknum. Við gerðum bara allt til að láta Grindavík jafna þennan leik en sem betur fer þá hafðist þetta og þetta er erfiður útivöllur og gríðarlega mikilvæg þrjú stig.''
Fylkismenn spiluðu ekki vel í síðari hálfleik en skora þó sigurmarkið og halda hreinu.
„Pressan var ekki nægilega góð og Grindavík er með góða fótboltamenn og svo vorum við æstir og vorum að selja okkur í einn á einn stöðum. Sem betur fer þá hélt þetta hjá okkur.''
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.




