Fotbolti.net
17.06.26 - 13:28
Brynjar Ingi Erluson

Hvert áfallið rekur annað hjá Partey

Hvert áfallið rekur annað hjá Partey
Canon

Mynd: EPA

Ganamaðurinn Thomas Partey hefur upplifað betri daga en þá sem hann er að fara í gegnum í þessari viku.
Á dögunum var Partey, sem er með landsliði Gana á heimsmeistaramótinu, neitað um inngöngu til Kanada.

Kanadísk yfirvöld höfnuðu beiðni Partey um að koma inn í landið vegna ákærumáls á hendur honum í Lundúnum. Hann hefur verið ákærður fyrir sjö nauðganir og eitt kynferðisbrot.

Gana áfrýjaði ákvörðuninni í gær en hún stendur óbreytt og mun Partey því ekki spila gegn Panama í fyrsta leik liðsins á mótinu.

Athletic segir í dag að hvert áfallið reki annað, en félag hans, Villarreal, hefur ákveðið að framlengja ekki samning hans. Partey verður því án félags um mánaðamótin.

Partey, sem er 33 ára gamall, samdi við Villarreal á síðasta ári eftir að hafa yfirgefið Arsenal. Hann spilaði 32 leiki með liðinu í öllum keppnum, en Villarreal átti möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár og hefur kosið að nýta sér hann ekki.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.