Fotbolti.net
17.06.26 - 10:04
Brynjar Ingi Erluson

Iraola gefur grænt ljós - Ruben Dias til Real Madrid?

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, vill fá Diomande

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, vill fá Diomande

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Slúðurpakkinn frá Powerade er veglegur á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, en Marcus Rashford, Luka Vuskovic, Ruben Dias og Sandro Tonali koma allir við sögu ásamt fleiri spennandi leikmönnum.
Tottenham hefur fengið jákvæð merki um að félagið geti blandað sér í baráttuna við Arsenal og Manchester City um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali (26), sem er á mála hjá Newcastle United. Newcastle vill fá um 100 milljónir punda fyrir hann. (Telegraph)

Real Madrid er að undirbúa 80 milljóna punda tilboð í Rúben Dias (29), varnarmann Manchester City. (Mirror)

Manchester United hefur sett 40 milljóna punda verðmiða á enska sóknarmanninn Marcus Rashford (28), en útilokað möguleikann á að selja hann til Liverpool eða Manchester City. (ESPN)

Man Utd hefur einnig áhuga á að fá Mateus Fernandes og Crysencio Summerville frá föllnu liði West Ham, en Lundúnaliðið vill fá samtals um 140 milljónir punda fyrir þá. Fernandes er 21 árs miðjumaður en Summerville 24 ára vængmaður. (Mail)

Arsenal hefur náð samkomulagi við franska miðjumanninn Manu Koné (25) um kaup og kjör, en á enn eftir að semja við Roma um kaupverð. Talið er að Roma vilji fá um 43 milljónir punda fyrir hann. (Gazzetta dello Sport)

Liverpool er áfram að reyna að landa Yan Diomande (19) frá RB Leipzig og hefur Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool, gefið félaginu grænt ljós á að fá hann í hópinn. (Teamtalk)

Man City og Chelsea hafa sett sig í samband við umboðsmann Marco Palestra (21), sem leikur með Atalanta á Ítalíu. Viðræður við Atalanta eru þó ekki hafnar. (Sky Sport)

Al Hilal hefur endurvakið áhuga sinn á Raphinha (29), vængmanni Barcelona, en spænska félagið vill ekki ræða framtíð hans fyrr en eftir HM. (Globo)

Everton er að skoða möguleikann á að fá belgíska framherjann Loïs Openda (26) frá Juventus. Enska félagið vill fá hann að láni með möguleika á að gera skiptin varanleg á næsta ári. (Football Insider)

Leeds og Nottingham Forest eru einnig með í baráttunni um Openda. (Teamtalk)

Marseille er opið fyrir tilboðum í enska miðjumanninn Angel Gomes (25). Coventry og Hull, sem komust upp í ensku úrvalsdeildina í síðasta mánuði, eru meðal félaga sem hafa áhuga á Gomes, en hann eyddi síðari hluta síðasta tímabils á láni hjá Wolves. (Teamtalk)

Ítalíumeistarar Inter eru nýjasta félagið til að lýsa yfir áhuga á franska miðjumanninum Eduardo Camavinga (23), sem leikur með Real Madrid á Spáni. (Mundo Deportivo)

Brighton er ekki reiðubúið að greiða 60 milljóna punda verðmiðann á Luka Vuskovic (19), sem er samningsbundinn Tottenham. Hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Hamburger SV. (Football Insider)

Tottenham hefur hafnað fjölmörgum tilboðum í enska framherjann Will Lankshear (21), en félagið vill fá 20 milljónir punda fyrir hann. Lankshear heillaði marga á láni hjá Oxford á síðustu leiktíð og Sporting fylgist með stöðu mála. (Hayters)

Paris FC hefur rætt við Liam Rosenior, fyrrum stjóra Strasbourg, um möguleikann á að taka við keflinu af Antoine Kombouaré ef sá síðarnefndi yfirgefur félagið í sumar. (L'Equipe)
Tottenham gæti landað Tonali

Tottenham gæti landað Tonali

Canon

Mynd: EPA

Manu Kone til Arsenal?

Manu Kone til Arsenal?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.