Fotbolti.net
17.06.26 - 13:58
Brynjar Ingi Erluson

Leikmenn lýsa yfir áhyggjum af ástandi vallarins

Adrien Rabiot með boltann á Met Life-leikvanginum

Adrien Rabiot með boltann á Met Life-leikvanginum

Canon

Mynd: EPA

Leikmenn eru ekki ánægðir með að spila á Met Life-leikvanginum í New York-borg, en tveir leikmenn hafa kvartað yfir ástandi vallarins, sem þeir telja ekki boðlegt fyrir stórmót eins og HM.
MetLife-völlurinn er heimavöllur bandarísku ruðningsliðanna New York Giants og New York Jets.

Frakkland vann Senegal, 3-1, í fyrsta leik þjóðanna á mótinu í gær, en Adrien Rabiot, leikmaður Frakka, var ekki hrifinn af vellinum og ástandi hans.

„Völlurinn, ef völl má kalla, var eins og gervigras. Hann var mjög harður og stífur,“ sagði Rabiot eftir leikinn gegn Senegal í gær.

Ummælin koma aðeins nokkrum dögum eftir að Vinicius Junior, leikmaður brasilíska landsliðsins, kvartaði yfir því hversu þurr völlurinn var.

„Í seinni hálfleiknum varð völlurinn strax þurr vegna hitans. Leikurinn varð mjög hægur og þungur og við náðum aldrei taktinum,“ sagði Brasilíumaðurinn.

Fyrir HM var lagt tímabundið náttúrulegt gras á völlinn í stað gervigrassins sem er þar alla jafna. Gervigrasið á MetLife hefur slæmt orðspor, enda hafa margar NFL-stjörnur hlotið alvarleg meiðsli á því undirlagi.

Senegal mætir Noregi í næsta leik sem fram fer á vellinum, 22. júní. Enska landsliðið spilar einnig síðasta leik sinn í riðlakeppninni gegn Panama á vellinum síðar í þessum mánuði.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.