Lengjudeildin: Skoraði beint úr hornspyrnu í sigri Vestra á Ægi

Guðmundur Arnar skoraði beint úr hornspyrnu fyrir Vestra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Gunnar skoraði sérstakt mark en þurfti síðan að fara af velli

Vestri 3 - 2 Ægir
1-0 Guðmundur Arnar Svavarsson ('13 )
2-0 Ibrahima Balde ('22 )
2-1 Harley Bryn Willard ('25 )
3-1 Þórður Gunnar Hafþórsson ('56 )
3-2 Bjarki Rúnar Jónínuson ('74 )
Lestu um leikinn
1-0 Guðmundur Arnar Svavarsson ('13 )
2-0 Ibrahima Balde ('22 )
2-1 Harley Bryn Willard ('25 )
3-1 Þórður Gunnar Hafþórsson ('56 )
3-2 Bjarki Rúnar Jónínuson ('74 )
Lestu um leikinn
Bikarmeistarar Vestra eru komnir upp í 4. sæti Lengjudeildarinnar eftir 3-2 baráttusigur á Ægi á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag.
Frammistaða Vestra hefur verið mjög óstöðug á tímabilinu og liðið átt erfitt með að tengja saman sigra. Nýliðar Ægis hafa á sama tíma verið í brasi við botninn.
Guðmundur Arnar Svavarsson braut ísinn á 13. mínútu fyrir Vestra með Ólympíumarki. Hann tók hornspyrnu hægra megin og stýrði boltanum beint í samskeytin. Óverjandi og einkar glæsilegt mark.
Ibrahima Balde bætti við forystuna níu mínútum síðar. Edson Gomes fékk boltann í teignum og lagði hann fyrir Balde, sem stýrði honum í hornið. Agalegur varnarleikur hjá Ægi, sem svaraði þó ágætlega þegar Harley Bryn Willard minnkaði muninn.
Guðmundur Arnar átti þá slaka sendingu til baka sem Atli Rafn Guðbjartsson komst inn í. Þaðan fór boltinn á Willard sem kom Ægi aftur inn í leikinn.
Bjarki Rúnar Jónínuson var ekki langt frá því að jafna sex mínútum síðar en tilraun hans fór í stöng. Í kjölfarið náði Vestri betri tökum á leiknum og skapaði sér nokkur færi áður en flautað var til hálfleiks.
Vestramenn náðu að koma sér aftur í tveggja marka forystu á 56. mínútu með sérstöku marki. Breki Þór Hermannsson kom boltanum fyrir og varnarmaður Ægis hreinsaði í andlitið á Þórði Gunnari Hafþórssyni. Boltinn féll fyrir Þórð sem skoraði, en hann þurfti að fara af velli vegna höfuðhöggsins sem hann fékk í aðdraganda marksins.
Ægismenn fóru þá aftur að sækja á Vestra. Jordan Adeyemo setti boltann út á Willard, sem skaut í slána.
Það dró til frekari tíðinda á 72. mínútu þegar Elmar Atli Garðarsson tók Adeyemo niður í teignum. Bjarki Rúnar fór á punktinn og minnkaði muninn aftur í eitt mark.
Vestri fékk ágæti færi undir lok leiks. Breki átti hælspyrnu rétt framhjá og Balde fór illa með ágætt færi eftir skyndisókn. Kristinn Ásgeir Þorbergsson var þá ekki langt frá því að stela stigi fyrir Ægi er hann stýrði boltanum í hægra hornið en Marvin Darri Steinarsson var vandanum vaxinn og varði með glæsibrag.
Heimamenn gátu þó farið sáttir af velli með þrjú stig í farteskinu. Vestri er í 4. sæti með 16 stig, aðeins þremur stigum frá toppnum, á meðan Ægir er áfram í næstneðsta sæti með 7 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 9 | +11 | 19 |
| 2 | Fylkir | 9 | +3 | 18 |
| 3 | Afturelding | 8 | +8 | 16 |
| 4 | Vestri | 10 | 0 | 16 |
| 5 | Leiknir R. | 9 | +2 | 15 |
| 6 | HK | 9 | 0 | 15 |
| 7 | Grótta | 8 | -2 | 12 |
| 8 | Njarðvík | 9 | +3 | 11 |
| 9 | ÍR | 9 | -5 | 10 |
| 10 | Grindavík | 8 | -3 | 7 |
| 11 | Ægir | 9 | -6 | 7 |
| 12 | Völsungur | 9 | -11 | 5 |