Fotbolti.net
17.07.17 - 21:06
Ármann Örn Guðbjörnsson

Guðmundur Steinn: Rosalega sáttur með margt

Auglýsing
Guðmundur Steinn skoraði eina mark leiksins

Guðmundur Steinn skoraði eina mark leiksins

Canon

Mynd: Raggi Óla

Guðmundur Steinn fyrirliði Víkings Ólafsvíkur tryggði sínum mönnum 1-0 sigur á nágrönnunum á Skaganum.
"Ég er rosalega sáttur með margt, þrjú stigin aðallega og að hafa skorað mark".



"Varnarlínan okkar var mjög góð en ég er ekki sáttur hvernig við spiluðum einum fleiri. Þeir stjórnuðu leiknum þrátt fyrir að vera manni færri en við tókum allaveganna þrjú stig"




Steini eins og hann er kallaður hefur verið að finna netið mikið undanfarið en hann hefur skorað 4 mörk í síðustu 5 leikjum. 



"Ég hef bara verið að finna mig betur en ég tók eftir miklum mun á liðinu þegar við urðum þéttari varnarlega. Þá þurfa hin liðin að sækja ofar og þá opnast meira pláss fyrir mig"



Viðtalið í heild sinni má sjá í tækinu hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.