Fotbolti.net
22.07.26 - 11:58
Kári Snorrason

Frakkland og Þýskaland vilja hýsa HM saman

Spánverjar eru ríkjandi heimsmeistarar.

Spánverjar eru ríkjandi heimsmeistarar.

Canon

Mynd: EPA

Frakkland og Þýskaland undirbúa sameiginlegt tilboð til FIFA um að halda sameiginlegt heimsmeistaramót annað hvort 2038 eða 2042. Franski miðillinn Le Parisien greinir frá.

Búið er að úthluta mótunum 2030 (Spánn, Marokkó og Portúgal) og 2034 (Sádi-Arabía) en Þýskaland og Frakkland sækja um næstu lausu mót.
Fyrst var HM haldið í tveimur mismunandi löndum árið 2002, í Suður-Kóreu og Japan. Þrír gestgjafar voru á nýliðnu heimsmeistaramóti, Bandaríkin, Mexíkó og Kanada.

Þá verður leikið alls í sex löndum á HM 2030, Spánn, Marokkó og Portúgal, eru gestgjafar en einnig verður spilað í Argentínu, Úrúgvæ og Paragvæ vegna hundrað ára afmælis keppninnar.

Möguleg fjölgun í 64-liða HM gerir það að verkum að líklegra sé að tvær eða fleiri gestgjafaþjóðir hýsi mótið.

Frakkar héldu mótið síðast 1998 og urðu heimsmeistarar en Þjóðverjar voru gestgjafar fyrir 20 árum, árið 2006.
HM var síðast haldið í Þýskalandi 2006.

HM var síðast haldið í Þýskalandi 2006.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.