Davíð Helgi: Komst að þessari niðurstöðu eftir spjall við Kára frænda

Mættur til Lyngby í Danmörku.

Mynd: Lyngby

Var í lykilhlutverki í liði Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði mark á Akureyri og fagnaði með flikk-flakk heljarstökki.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

'Markmiðið mitt hjá Lyngby er að þróa minn leik og verða betri fótboltamaður'

Mynd: Lyngby

Glæsilegt fagn.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Verður í Danmörku næsta tæpa árið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það var erfitt að kveðja strákana enda erum við orðnir mjög nánir þrátt fyrir stuttan tíma saman'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur til Lyngby í Danmörku.

Mynd: Lyngby
Lyngby komst upp úr næstefstu deild í Danmörku í vor og verður því í úrvalsdeildinni á komandi tímabili. Hjá Lyngby voru fyrir þeir Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson, en Daníel var keyptur fyrr í sumar. Þá er jafnaldri Davíðs, Jakob Gunnar Sigurðsson, einnig á mála hjá Lyngby en hann verður á láni hjá Hilleröd í vetur.
Davíð ræddi við Fótbolta.net um skiptin.

Bjóst ekki við að sjá Davíð spila fyrir Víking - „Óvanaleg staða fyrir íslenskt félagslið“
„Tilfinningin er mjög góð. Ég er virkilega spenntur fyrir næsta ári og þeim áskorunum sem því fylgja," segir Davíð Helgi.
„Aðdragandinn að þessu var mjög stuttur. Ég hafði á tilfinningunni að eitthvað gæti gerst í sumarglugganum, en ég bjóst ekki við að hlutirnir myndu gerast svona hratt."
„Ég þurfti í raun engan umhugsunarfrest. Ég ræddi þetta við Kára frænda (Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi) og umboðsmennina mína og við komumst að þeirri niðurstöðu að þetta væri gott næsta skref fyrir mig á ferlinum."
Erfitt að kveðja strákana
Er erfitt að fara frá Keflavík?
„Þetta hefur verið geggjað tímabil sem hefur gefið mér gríðarlega mikla reynslu sem ég mun nýta mér áfram í mínum leik. Það var erfitt að kveðja strákana enda erum við orðnir mjög nánir þrátt fyrir stuttan tíma saman."
Skemmtilegra að spila í vörninni
Davíð hefur bæði spilað í vörninni og á miðjunni.
„Mér finnst skemmtilegra að spila í vörninni og ég fann það þegar ég færðist aftur niður í hafsentinn. Það var þó frábær reynsla að spila á miðjunni, þar sem ég gat sett mig í spor miðjumanna og skilið betur hvernig þeir þurfa að spila leikinn. Ég spilaði nánast alltaf á miðjunni þegar ég var yngri, en það breyttist þegar ég flutti til Íslands og byrjaði að spila með Víkingi. Þess vegna kom mér ekkert á óvart að Halli skyldi setja mig inn á miðjuna – og það gekk vel líka."
Davíð er uppalinn í Svíþjóð en flutti til Íslands fyrir um fjórum árum síðan.
Fann að liðið var mjög gott
Hefur góð spilamennska Keflavíkur að einhverju leyti komið þér á óvart?
„Ég kom til Keflavíkur á þeim tíma sem fjölmiðlar voru að spá liðinu falli. Um leið og ég byrjaði að æfa og spila með liðinu fann ég að við værum með mjög gott lið og því kom spilamennskan mér alls ekki á óvart."
Mjög glaður að sjá Keflavíkurliðið gegn ÍA
Hvernig var að sjá Keflavík á móti ÍA?
„Ég horfði á allan leikinn gegn ÍA og var mjög glaður að sjá strákana spila svona vel. Ég mun fylgjast með öllum leikjunum sem eftir eru á tímabilinu enda held ég mjög mikið með þeim."
Lokatölur í leiknum urðu 5-2 fyrir heimamönnum í Keflavík.
Gerir ekki upp á milli liðanna
Þú varst hjá Njarðvík í fyrra, hvort ertu meiri Njarðvíkingur en Keflvíkingur?
„Njarðvík er að sjálfsögðu líka mitt lið. Ég fékk tækifæri til að spila heilt tímabil í Lengjudeildinni í fyrra og sú reynsla var mjög dýrmæt fyrir mig. Ég get því ekki gert upp á milli liðanna."
Spáir ekki í kaupákvæðinu
Hvert er markmiðið með Lyngby?
„Markmiðið mitt hjá Lyngby er að þróa minn leik og verða betri fótboltamaður. Þetta verður gríðarlega gefandi, bæði fyrir mig sem leikmann og sem einstakling, þar sem ég er að flytja að heiman og kynnast nýju landi og spila fótbolta ofan á það."
Fjallað hefur verið um kaupákvæði í lánssamningnum, er það eitthvað sem þú spáir í?
„Kaupákvæðið er ekki eitthvað sem ég hugsa mikið um. Núna snýst þetta einfaldlega um að koma mér vel inn í nýtt umhverfi, aðlagast sem fyrst og gefa allt í þau verkefni sem fram undan eru," segir Davíð Helgi.
Danska úrvalsdeildin byrjar um komandi helgi og heimsækir Lyngby stórlið FCK á Parken í fyrstu umferð deildarinnar.

Var í lykilhlutverki í liði Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði mark á Akureyri og fagnaði með flikk-flakk heljarstökki.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

'Markmiðið mitt hjá Lyngby er að þróa minn leik og verða betri fótboltamaður'

Mynd: Lyngby

Glæsilegt fagn.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Verður í Danmörku næsta tæpa árið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það var erfitt að kveðja strákana enda erum við orðnir mjög nánir þrátt fyrir stuttan tíma saman'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





