Maggi tileinkaði tveimur Mosfellingum sögulegan sigur - „Ég og þrír hestar að horfa á leikinn í neðstu deild"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Forréttindi að fá að þjálfa þetta lið", sagði Magnús Már Einarsson eftir að hafa sigrað Fylki í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
„Það var liðsheildin og trúin hjá okkur, við trúðum allan tímann. Lentum undir, svöruðum, komum frábærlega inn í leikinn eftir að við lentum undir."
„Klikkum á vítum til að klára en þá kemur Arnar alltaf bara aftur og aftur í næsta víti. Hann var algjörlega stórkostlegur í þessari vítakeppni. Vel undirbúin hjá Dodda markmannsþjálfara, þetta var frábærlega gert."
Maggi segir að liðið sé búið til af sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum, þetta væri ekki hægt án þeirra.
„Ótrúlegt að sjá allan Mosfellsbæinn mættan, við erum að skrifa nýjan kafla í sögu í fótboltanum í Mosfellsbæ á hverju ári. Við viljum meira, ætlum að halda því áfram, við erum ekki saddir."
„Ég vil tileinka sigurinn til Ólafi Pálmassyni stuðningsmanni sem lést aldur fram í vor eftir veikindi, það væri gaman að hafa hann með okkur í dag og Guðjón Guðjónssyni í meistaraflokksráði sem lést í fyrra. Þetta eru tveir menn sem stóðu þétt við bakið á liðinu og liðið er bara búið til af sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum og fólkinu í kringum þetta. Strákarnir eru geggjaðir, en þetta er það sem býr þennan kraft sem er í gangi í fótboltanum í Mosfellsbæ og við þurfum að halda því áfram."
Var Maggi að búast við þessu þegar hann fór á fyrsta leikinn sinn hjá Aftureldingu?
„Fyrsti leikurinn sem ég fór með meistaraflokki Aftureldingar þá var spilað á Tungubökkum, ég og þrír hestar að horfa á leikinn í neðstu deild. Nei ég sé þetta ekki fyrir mér þá og hvað þá að vera þáttakandi í því. Gríðarlega þakklátur fyrir að fá að stýra uppeldisfélaginu. Það gerir ógeðslega mikið fyrir mig að fá að stýra þessu liði, ógeðslega þakklátur fyrir það."



