Fotbolti.net
22.07.26 - 13:32
Elvar Geir Magnússon

„Kaup sem við stuðningsmenn höfum verið að öskra eftir“

Rogers á Brúnni.

Rogers á Brúnni.

Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea tilkynnti í gær um kaup á enska landsliðsmanninum Morgan Rogers frá Aston Villa fyrir 117 milljónir punda. BBC ræddi við nokkra stuðningsmenn Chelsea og það er mikil spenna fyrir þessum leikmannakaupum.

„Þetta eru fyrstu kaupin í einhver ár sem ég er virkilega spenntur fyrir. Við erum að kaupa heimsklassa leikmann sem hefur sannað sig í ensku úrvalsdeildinni og unnum samkeppni við Englandsmeistarana," segir Jeremy en Arsenal reyndi að fá Rogers.

„Þetta eru einmitt leikmannakaup sem við stuðningsmenn höfum öskrað eftir síðan eigendurnir komu inn. Ég get ekki beðið eftir því að tímabilið hefjist."
Hringdi linnulaust til að fá besta vin sinn - Geta tekið kuldafagnið saman
TENGT EFNI

Hringdi linnulaust til að fá besta vin sinn - Geta tekið kuldafagnið saman

Nina Hristova tekur í sama streng og segir að kostir Chelsea fram á við séu gríðarlega spennandi.

„Innkaupastefnan síðustu ár hefur að stórum hluta verið sundurlaus og vonbrigði, hágæðaleikmenn sem hafa þurft tíma til að þróast áður en þeir geta haft alvöru áhrif. Þetta er öðruvísi með Rogers," segir Hristova.

„117 milljónir punda er há upphæð en svona er markaðurinn núna. Miðað við hvað Chelsea hefur eytt í hráan efnivið þá er þetta réttlætanlegra að mörgu leyti því Rogers hefur sannað sig í deildinni. Hann bætir byrjunarliðið samstundis og þarf ekki biðtíma. Hann getur spilað sem tía og á köntunum. Hann er fjölhæfur sem er mikill styrkleiki."
„Kaup sem við stuðningsmenn höfum verið að öskra eftir“
Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.