Iraola vil halda Mac Allister og Alisson - Arsenal hefur áhuga á Rashford og Konsa

Alexis Mac Allister með Argentínu á HM.

Mynd: EPA

Lundúnafélög vilja Marcus Rashford.

Mynd: EPA

Ezri Konsa.

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister með Argentínu á HM.

Mynd: EPA

Góðan og gleðilegan miðvikudag og velkomin með okkur í slúðurpakka dagsins. Ensk stórlið hafa áhuga á Rashford, Konsa er á blaði Arsenal og Forest ætlar að bæta við varnarmanni. Þetta og fleira í pakka dagsins.
Andoni Iraola stjóri Liverpool vill halda argentínska miðjumanninum Alexis Mac Allister (27) og brasilíska markverðinum Alisson (33) hjá félaginu. Mac Allister á tvö ár eftir af samningi sínum en Alisson eitt ár. (BBC)
Mac Allister hefur enn ekki hafið viðræður við Liverpool um nýjan samning og það skapað vangaveltur um að hann gæti fært sig um set. (BBC)
Lundúnafélögin Tottenham, Chelsea og Arsenal hyggjast öll reyna að fá framherjann Marcus Rashford (28) en stjórnendur Manchester United vilja ekki selja hann í annað enskt félag. (The I)
Argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez (33) hjá Aston Villa er á óskalista Juventus og þá hefur Arsenal áhuga á liðsfélaga hans, varnarmanninum Ezri Konsa (28). (Telegraph)
Nottingham Forest er komið á fullt skrið í viðræðum um kaup á varnarmanninum Ousmane Diomande (22), leikmanni Fílabeinsstrandarinnar og Sporting Lissabon. (Fabrizio Romano)
Juventus vill fá franska miðvörðinn Jean-Clair Todibo (26) frá West Ham. (Gazzetta dello Sport)
Manchester United vill áfram fá inn miðjumann en háir verðmiðar á kamerúnska landsliðsmanninum Carlos Baleba (22) hjá Brighton og Alex Scott (22) hjá Bournemouth hafa fælingarmátt. (TeamTalk)
Bournemouth er ákveðið í að halda í Scott, sem Arsenal hefur einnig áhuga á, þó hann hafi hafnað nýju samningstilboði félagsins. (Telegraph)
Ipswich hefur náð samkomulagi um að kaupa japanska framherjann Daizen Maeda (28) fyrir tæpar 10 milljónir punda. (Sky Sports)
Ástralski bakvörðurinn James Overy (18) hjá Manchester United er undir smásjá Rangers í Glasgow og félaga í Ástralíu. (Mail)