Fotbolti.net
21.07.26 - 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Risatilboð frá Sádi og West Ham sagði já um leið

Risatilboð frá Sádi og West Ham sagði já um leið
Canon

Mynd: EPA

West Ham hefur náð samkomulagi við Al Hilal um kaup sádi-arabíska félagsins á Crysencio Summerville.

Sky Sports segir að þegar allt sé tekið saman sé Al Hilal að bjóða 68 milljónir punda fyrir hollenska kantmanninn.

Roma hefur verið að kroppa í Summerville, sem er 24 ára, en náði ekki samkomulagi við West Ham. Sagt hefur verið frá því að Roma hafi boðið 39 milljónir punda í leikmanninn á dögunum.
Þegar Al Hilal bauð 68 milljónir punda var tilboðinu fljótt tekið af West Ham.

Manchester United var einnig orðað við Summerville en ekkert varð af formlegum viðræðum þar sem hugmyndin var sú að Summerville yrði fenginn inn ef Marcus Rashford yrði seldur. Rashford er enn leikmaður United í dag og óvíst hvort hann fari í sumar.

Ef salan gengur í gegn verður hún sú þriðja hæsta í sögu West Ham á eftir Declan Rice til Arsenal og Mateus Fernandes til Tottenham. West Ham, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor, verður þá búið að fá meira en 150 milljónir punda fyrir sölurnar á Fernandes og Summerville í smar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.