Fotbolti.net
22.07.26 - 11:32
Elvar Geir Magnússon

Eckert ákærður vegna njósnamálsins

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Canon

Mynd: EPA

Tonda Eckert, stjóri Southampton, hefur verið ákærður fyrir óviðeigandi háttsemi af enska fótboltasambandinu vegna njósnamálsins.

Southampton var rekið út úr Championship-umspilinu í maí eftir að hafa viðurkennt að hafa njósnað um æfingar þriggja af andstæðingum sínum yfir tímabilið.

Southampton sendi njósnara til að fylgjast með æfingum andstæðinga og varð mikið fjölmiðlafár þegar hann var nappaður að fela sig bak við tré á æfingasvæði Middlesbrough.

Sjálfstæð aganefnd úrskurðaði á sínum tíma að njósnirnar hefðu verið heimilaðar af Eckert og væru „úthugsuð og markviss áætlun sem kom frá yfirstjórn félagsins“.
Birta mynd af njósnaranum - Faldi sig bak við tré
TENGT EFNI

Birta mynd af njósnaranum - Faldi sig bak við tré

Síðan þá hefur enska fótboltasambandið verið að rannsaka málið og hefur nú ákært hann fyrir þrjú brot á reglum þess.

Southampton vann Middlesbrough í undanúrslitum umspilsins en eftir að Southampton var vísað úr keppni fór Boro í úrslitaleikinn þar sem það beið lægri hlut gegn Hull City.

Í júní sagði Dragan Solak eigandi Southampton að Eckert yrði ekki rekinn þrátt fyrir „mistökin“ og að félagið hafi þegar fengið nægilega refsingu. Sjálfur viðurkennir Eckert mistök.

„Það hefur verið erfitt að lesa sumt af því sem hefur verið skrifað. Ég tek ábyrgð og biðst afsökunar á dómgreindarleysinu. Við viljum horfa til framtíðar og það hefur verið brosað og góð orka á æfingasvæðinu," sagði Eckert við BBC nýlega.
Leikgreinandi á vegum Southampton faldi sig bak við tré.

Leikgreinandi á vegum Southampton faldi sig bak við tré.

Canon

Mynd: Daily Mail

Eckert ákærður vegna njósnamálsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.