Fotbolti.net
22.07.26 - 12:35
Elvar Geir Magnússon

Hringdi linnulaust til að fá besta vin sinn - Geta tekið kuldafagnið saman

Rogers er upphafsmaður kuldafagnsins en Palmer hermdi eftir því.

Rogers er upphafsmaður kuldafagnsins en Palmer hermdi eftir því.

Canon

Mynd: Samsett/EPA

Morgan Rogers var í gær kynntur sem nýr leikmaður Chelsea en hann hefur nú sagt frá því hvernig Cole Palmer var í stöðugu sambandi við hann í aðdragandanum.

Rogers og Palmer eru perluvinir eftir að hafa verið saman í akademíu Manchester City á sínum tíma og einnig með yngri landsliðum Englands.

Kuldafagn Cole Palmer, eða 'Cold Palmer', varð heimsfrægt en hann hefur fagnað mörkum eins og hann sé með kuldahroll. Rogers á hinsvegar fagnið upphaflega og þegar Palmer tók það fyrst var það tileinkað honum.
„Palmer stal þessu fagni frá mér“
TENGT EFNI

„Palmer stal þessu fagni frá mér“

„Ég hef þekkt Cole síðan ég var um fjórtán ára. Við höfum oft talað um að það væri gaman að spila saman í liði. Við erum því báðir mjög spenntir. Hann hefur hringt í mig linnulaust og er alltaf að senda mér skilaboð," segir Rogers en Chelsea borgar Aston Villa um 117 milljónir punda fyrir hann.

„Það er mjög skemmtilegt að vera að fara að spila með besta vini sínum og vera í kringum hann á hverjum degi. Ég er mjög spenntur fyrir því."

Hringdi linnulaust til að fá besta vin sinn - Geta tekið kuldafagnið saman
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.