Valur aldrei áður í fallsæti - einu sinni stærra tap

Valskonur hafa ekki oft haft ástæðu til að fagna á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er í fallsæti Bestu deildarinnar að tólf umferðum loknum, níunda sætinu, eftir skellinn gegn Breiðabliki, 7-1, í gærkvöld, og Hlíðarendafélagið er þar algjörlega á nýjum slóðum.
Valur er eina félagið sem alltaf hefur leikið í efstu deild kvenna og hefur aldrei endað neðar en í 7. sæti, sem gerðist árin 2014 og 2015, og í hvorugt skiptið fór liðið neðar en það á viðkomandi keppnistímabili.

Tapið gegn Breiðabliki er það versta í ellefu ár, eða síðan Breiðablik vann báða leikina gegn Val með markatölunni 6-0 árið 2015. Valur hefur tvisvar áður tapað 7-1 og það var líka gegn Breiðabliki í bæði skiptin, fyrst árið 1985 og síðan árið 1996.
En þetta er samt ekki jöfnun á versta tapi Vals í sögunni. Það kom árið 2002, í lokaumferðinni, þegar nýkrýndir Íslandsmeistarar KR rótburstuðu Hlíðarendaliðið 9-0, en þetta var helmingur markanna sem Valur fékk á sig allt það ár í deildinni.
Meira um það sem gerðist í 12. umferð Bestu deildar kvenna er að finna í þessari grein:

TENGT EFNI