Bjartsýnn á að landa Tryggva í glugganum - „Eitthvað mesta bull sem ég hef heyrt“

„Vonandi ætti þetta að leysast á næstu dögum.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn með samkomulag við uppeldisfélagið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Jóns ekki á förum.

Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur náð samkomulagi við uppeldisfélagið ÍA og mun ganga til liðs við Skagamenn þegar samningur hans við Val rennur út eftir tímabil.
Framkvæmdastjóri ÍA, Ingimar Elí Hlynsson, segist þó bjartsýnn á möguleikann á að ná samkomulagi við Val um að Tryggvi gangi í raðir félagsins í sumarglugganum.
„Áhugi okkar er á því en boltinn er hjá Val og þeir ráða ferðinni,“ segir Ingimar.

TENGT EFNI
Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA
Hann segir félögin hafa átt í góðu samtali. „Við erum í samtali við Val um að fá einhverja niðurstöðu í þessu. Valsarar hafa tekið það samtal við okkur af mikilli fagmennsku. Vonandi ætti þetta að leysast á næstu dögum.“
Ertu bjartsýnn á að landa honum í glugganum?
„Ég er alltaf bjartsýnn, maður reynir að vera það,“ segir Ingimar léttur.
Viktor ekki á förum
Viktor Jónsson var á dögunum orðaður frá félaginu. Sá orðrómur var borinn undir Ingimar og hann spurður hvort Viktor væri falur.
„Nei, það er eitthvað mesta kjaftæði sem ég hef heyrt. Ég held að Viktor sé meira að hugsa um það hvernig hann getur plantað sér meira hérna á Skaganum.“
„Viktor er grjótharður Skagamaður og búinn að vera hérna í átta ár. Það er stutt í að hann verði markahæsti leikmaður ÍA í efstu deild. Viktor fer ekki neitt, það er punktur fyrir aftan það,“ segir Ingimar að lokum.