Fotbolti.net
22.07.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Taktísk ákvörðun hjá Sölva - „Ég er kannski svo brenglaður"

Taktísk ákvörðun hjá Sölva - „Ég er kannski svo brenglaður"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Friðriksson var í markinu hjá Víkingi í frábærum 2-1 sigri á ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á Víkingsvelli í gær.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Hapoel Be'er Sheva
Aron missti af báðum leikjunum gegn Györ í fyrstu umferð og síðasta leik liðsins gegn Þór í Bestu deildinni vegna meiðsla. Hann var staðráðinn í að mæta fyrr á völlinn.

„Ég er kannski svo brenglaður að ég horfði á Györ úti. Mér var tjáð mjög rólega af sjúkraþjálfaranum að geta gleymt því. Þá ætlaði ég að spila Þórsleikinn, ég var mjög sáttur með að fá að spila í dag," sagði Aron.

„Ég er ekki týpan sem nennir að banka á skrifstofuna hjá þjálfaranum og komast að einhverju. Ég kemst bara að því á liðsfundi daginn áður (að hann yrði í byrjunarliðinu í gær)," sagði Aron.

Sölvi Geir Ottesen var spurður að því hvers vegna Aron hafi fengið tækifæri á kostnað Ögmundar Kristinssonar sem hafði spilað síðustu leiki.

„Það var taktísk breyting. Aron er með sína eiginleika sem við töldum henta betur í þessum leik þannig hann varð fyrir valinu," sagði Sölvi.

Aron gekk til liðs við Viking fyrir áramót frá Lengjudeildarliði Njarðvíkur. Hann nýtur sín að spila í forkeppni Meistaradeildarinnar.

„Helvíti gaman. Gaman að spila gæðafótbolta, manni finnst maður eiga heima hérna og hefur unnið fyrir þessu," sagði Aron.

„Margir leikmenn úr Njarðvík eru komnir á hærra stig heldur en ég. Amin (Cosic) kominn til Noregs og Davíð kominn til Danmerkur. Þetta er bara fótbolti, þetta var hörkulið hjá Njarðvík í fyrra og ég er ennþá pirraður að hafa ekki farið upp. Það er búið að drífa mig áfram í vetur, það virkaði."

„Þetta er alvöru félag og standarinn er mjög hár. Maður fer upp á 'levelið' með þeim og ef þú gerir það ekki getur þú reiknað með því að það verði lesið yfir þér þannig það er eins gott að gera það," sagði Aron um veruna hjá Víkingi hingað til.
Taktísk ákvörðun hjá Sölva - „Ég er kannski svo brenglaður"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi sáttur: Vil fá VAR í íslensku deildina

Eins og að lenda í kyrkislöngu - „Fannst við þora að vera til aftur"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.