Mikael Nikulásson: Mér fannst þeir betri heldur en við í þessum leik
Auglýsing

Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvíkingar heimsóttu ÍR í Breiðholtið þegar flautað var til leiks í 6.umferð 2.deild karla á Hertz vellinum í kvöld. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og enduðu leikar með jafntefli 1-1.
„Ég bara verð að vera sáttur við þetta stig, við spiluðum okkar lélegasta leik á þessu Íslandsmóti í kvöld, eiginlega allar 90 mínúturnar og að koma hérna og taka eitt stig það gæti verið dýrmætt einhvertíman í mótinu ef við rífum okkur í gang sem ég vona að við gerum en ég er bara sáttur við að taka stig úr þessum leik." Sagði Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur eftir leikinn í kvöld.

Eftir kröftuga byrjun hefur svolítið farið að halla undan hjá Njarðvíkingum en því er Mikael þó ekki sammála.
„Nei nei, við spiluðum fínt á móti KF, var bara einn af okkar betri leikjum, áttum að vinna það miklu stærra og það var nú bara síðasti leikur. Menn geta vegið og metið þessa leiki á móti Kórdrengjum og Þrótt Vogum, það voru jafnir leikir og við vorum svolítið klaufar í þeim leikjum en þetta var bara léleg frammistaða, við töpuðum ekki leiknum og þetta er ÍR og við erum á útivelli, það var allt undir hjá þeim líka að dragast ekki vel aftur úr í þessari baráttu þannig þeir voru bara seigir í kvöld og mér fannst þeir betri heldur en við í þessum leik en við náðum að jafna hérna og náðum þessum punkt og við allavega töpuðum ekki svo ég vona að það komi mönnum aðeins upp á tærnar að hafa allavega náð punkti með því að spila mjög illa."
ÍR varð fyrir því óláni að missa markmanninn sinn af velli í meiðsli í síðari hálfleik og voru ekki með neinn varamarkmann svo að Sigurður Karl Gunnarsson varð að klára leikinn fyrir þá í markinu en þrátt fyrir það ógnuðu Njarðvíkingar ekki marki ÍR mikið meira.
„Nei, þú verður að getað tekið skotið á markið og þú verður að gera eitthvað og senda fyrir og við reyndum einusinni á hann og skoruðum, ég veit ekki hvort að aðalmarkmaðurinn þeirra hefði varið það skot ég bara sá þetta ekki alveg nógu vel en við skoruðum eitt mark en við vorum bara slakir, þungir og langt frá mönnunum, vorum ekki að tala og við vorum bara slakir í þessum leik og það skipti engu máli, ég eða þú hefðum getað farið í markið þarna hjá ÍR og við hefðum ekkert fengið fleirri mörk á okkur að mínu mati á þessum 20-30 mínútum eftir að hann fór útaf meiddur."
Mikael segist þá hafa beðið ÍR afsökunar á lélegri spilamennsku og segist virða stigið.
„Ég fór nú bara og bað þá afsökunar á frammistöðunni okkar og að við hefðum ekki allavega boðið upp á betri fótbolta. Já ég virði þetta stig."
Viðtalið í heild er í spilaranum hér fyrir ofan.