Fotbolti.net
09.07.26 - 14:03
Elvar Geir Magnússon

Manzambi skrifar undir hjá Newcastle eftir HM

Manzambi skrifar undir hjá Newcastle eftir HM
Canon

Mynd: EPA

Newcastle hefur náð samkomulagi við Freiburg um kaup á Johan Manzambi fyrir um 52 milljónir punda.

Svisneski landsliðsmaðurinn hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu og öfluga frammistöðu á HM. Skiptin yfir til Newcastle verða ekki frágengin fyrr en eftir að Sviss dettur út á HM.

Manzambi er 20 ára gamall og er að glæma við smávægileg hnémeiðsli. Óvíst er hvort hann verði leikfær í 8-liða úrslitum gegn Argentínu á sunnudag.
Newcastle vill skemmtilegasta leikmann Sviss
TENGT EFNI

Newcastle vill skemmtilegasta leikmann Sviss

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Newcastle í sumar. Bruno Guimaraes vill fara til Arsenal en hann er ekki sáttur eftir að Sandro Tonali og Anthony Gordon voru seldir til Tottenham og Barcelona.

Newcastle vill ekki missa Bruno en hann hefur látið félagið vita að hann vilji færa sig um set.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.