Fotbolti.net
08.07.26 - 22:59
Sigurjón Árni Torfason
Gatorade

Glaður að sjá samstöðuna - „Erum lítið samfélag“

Auglýsing
Glaður að sjá samstöðuna - „Erum lítið samfélag“
Canon

Mynd: Facebook

Selfoss er komið í átta liða úrslit Gatorade bikar Fótbolti.net eftir öruggan 5-0 sigur á Árborg í Selfossslagnum í kvöld. Leikurinn var haldinn til styrktar Helgu Guðmundsdóttur, sem lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein.
Lestu um leikinn: Selfoss 5 - 0 Árborg

„Já, bara fallegur dagur og ég er ótrúlega þakklátur bara fyrir mætinguna og samstöðunni sem fólk sýndi með að koma hérna. Varðandi leikinn sjálfan þá ætluðum við okkur náttúrulega mikið meira og vorum ótrúlega ólíkir okkur hérna í upphafi." sagði Adolf Ingvi þjálfari Árborgar við Fótbolti.net eftir leik.

„Við fengum á okkur skrýtin mörk. Selfyssingar voru bara miklu grimmari og hlupu bara yfir okkur. Seinni hálfleikurinn var skömminni skárri, við ætluðum að halda haus og reyna að gefa þeim alvöru seinni hálfleik og mér fannst við hafa bara mætt þeim þokkalega."

Mætingin á leikinn var frábær. Rúmlega 700 áhorfendur mættu á völlinn, en alls seldust um 1.300 miðar.

"Ótrúlega glaður. við erum náttúrulega lítið samfélag og hún Helga Guðmundsdóttir er náttúrulega bara skólasystir okkar þjálfarana í Árborg, bara yndisleg manneskja og bara hræðileg örlög. Þannig að við erum bara ótrúlega glaðir með samstöðuna og að fólk hafi mætt og átt svona góðan dag.´´

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.