Fotbolti.net
09.07.26 - 11:30
Runólfur Trausti Þórhallsson

„Tímabært fyrir mig að taka næstu skref á ferlinum“

Páll hefur starfað innan íslenska fótboltans í meira en tvo áratugi.

Páll hefur starfað innan íslenska fótboltans í meira en tvo áratugi.

Canon

Mynd: Aðsend

Páll Árnason, fráfarandi yfirþjálfari Stjörnunnar, ræddi stuttlega við blaðamann um ástæður þess að hann ákvað að kalla þetta gott í Garðabænum og hver næstu skref hjá honum sjálfum væru.
Á dögunum greindum við á Fótbolti.net frá því að Páll væri á förum frá Stjörnunni eftir sex ár þar í bæ. Hann segir einfaldlega kominn tíma á breytingar.

Hvað kemur til að þú segir upp á þessum tíma?

„Ég er búinn að eiga sex góð ár hjá Stjörnunni og finnst ég búinn að áorka mjög mörgu, að einhverju leyti kominn tími til að annar aðili komi með ferskar áherslur. Umhverfið er krefjandi og síbreytilegt og því eðlilegt að það eigi sér stað einhver endurnýjun með reglulegum hætti. Að sama skapi er tímabært fyrir mig að taka næstu skref á ferlinum. Hef gengið í nánast öll störf innan félagsins á einhverjum tímapunkti og langar að halda áfram minni þróun í faginu.“

Yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar lætur af störfum
TENGT EFNI

Yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar lætur af störfum



Hvernig horfir þú til baka á tímann þinn í Garðabænum?

„Þessi sex ár sem ég hef starfað hjá félaginu er ekkert eitt sem stendur upp úr, nema kannski fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni og gerir félagið að því góða félagi sem það er í dag. Ég hef fengið frelsi til að taka upp margar nýjungar og er ég þakklátur fyrir það. Frá því ég kom inn höfum við tekið upp Physical Periodization eða álagsstýringu, Tactical Periodization eða leikmódel, kúltúr vinnu og skipulag inn á XPS Sideline.“

„Andri Freyr Hafsteinsson hefur verið okkar maður í álagsstýringunni og fáir betri en hann þar, hann planar álag með þjálfurum flokkana og gætir þess að við séum að hámarka það sem við getum líkamlega. Tactical Periodization er í raun okkar Game model, hvernig leikmenn við viljum búa til og af hverju við spilum eins og við spilum. Allt með þeirri hugsun að setja áskoranir á krakkana og fá þau út úr þægindarammanum til að hámarka bætingar. Það getur verið krefjandi þar sem úrslit geta oft verið erfið en þau eru þá á kostnað þess að læra og þroskast. “

„Allar þessar æfingar eru síðan inn í XPS þar sem við höldum utan um allt og rýnum í. Að lokum er það kúltúr vinnan okkar sem Hilmar Árni Halldórsson byrjaði með okkur sem er frábær. Bæði þjálfarar og iðkendur eru að vinna mikið með kúltúr og hefur gengið vel en þarf að spíta enn meira í þar og taka næstu skref, sem ég innilega vona að félagið geri.“

„Umhverfið sem þjálfararnir vinna í er metnaðarfullt og kröfur á þjálfara miklar. Gerð er krafa um að flestir leikir séu teknir upp og greindir í 4.-2. flokki. Notkun GPS mæla er einnig í þessum sömu flokkum sem gefur okkur gríðarlega góðar og mikilvægar upplýsingar um gæði æfinga og leikja. Þjónustan í félaginu er góð og mikil styrkur fólgin í mannauði þjálfara innan félagsins.“

Námið í Johan Cruyff Institute Barcelona, hvað fólst í því?

Master í Football Business and Management er í raun bara yfirmaður knattspyrnumála nám eða Director of Football nám. Alfreð Finnbogason og Grétar Rafn Steinsson kláruðu þetta nám einnig á sínum tíma. Námið er fyrir leiðtoga og stjórnendur um allan heim í Íþróttum og ég tók sem sagt sérhæfinguna fyrir knattspyrnu. Það er farið í allt sem viðkemur því að reka knattspyrnulið og mikið af kennurum úr atvinnulífinu sem gerir námið enn verðmætara. Lokaverkefnið mitt var um Strategic Planning sem er eitthvað sem flest félög munu koma til með að notfæra sér í framtíðinni. Námið opnaði einnig augu manns fyrir tækifærunum á Íslandi þegar kemur að fótboltanum, eigum inni helling til að taka leikinn okkar á næsta level og það er eitthvað sem heillar mig að geta tekið þátt í.“

Hvað tekur við?

„Er bara að vega og meta tækifæri innan og utan fótboltans, hérlendis og erlendis, en held öllu opnu og bíð spenntur eftir næstu tækifærum. Er fyrst og fremst að horfa í það að geta haft áhrif og tekið hlutina áfram á hæsta getustig. Hef tveggja áratuga reynslu sem mér langar að halda áfram að miðla og vinna með góðu fólki. Það eru forréttindi að vinna við áhugamálið sitt og vonandi fæ ég tækifæri til þess áfram.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.