HM-leikur Núnú – Frakkar mæta Marokkó – Þú hefur til klukkan 18:00 að spá!

Leikar æsast hressilega í dag þegar 8 liða úrslit HM hefjast

Mynd: Fótbolti.net

Leikar æsast hressilega í dag þegar 8 liða úrslit HM hefjast

Mynd: Fótbolti.net
Leikar æsast hressilega í dag þegar 8 liða úrslit HM hefjast með látum. Fyrsti leikur 8 liða úrslita er stórslagur milli stórliðs Frakka og Marokkó sem hefur sýnt skemmtilega takta á mótinu.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 og það þýðir bara eitt, þú hefur til klukkan 18:00 til að fara í spámannsskóna og spá fyrir um úrslit leiksins í HM-leik Núnú og Fotbolti.net. Nú er komið að því að safna stigum en því fleiri leiki sem þú spáir rétt fyrir um – því fleiri stig færðu í pottinn. Þú getur skráð þig til leiks eftir fyrsta leikinn en þá færðu ekki stig fyrir fyrsta leikinn né geturðu spáð fyrir um lokastöðu liðanna á HM.
Það borgar sig því að gleyma ekki að setja inn þína spá um hvaða lið endi í efstu sætunum á mótinu.
En það er ekki eftir neinu að bíða! Þú hefur til klukkan 18:00 að læsa inn þinni spá fyrir leik Frakklands og Marokkó.
Áttu von á óvæntum úrslitum?
Spáðu fyrir um úrslit útsláttarleikja á HM 2026, frá 8-liða úrslitum til lokaleiks. Því fleiri leiki sem þú giskar á rétt, því fleiri stig færðu. Efstu þátttakendur vinna allt að 100.000 króna gjafakort í Smáralind.




