HK gerði ekki góða ferð norður um liðna helgi þegar liðið tapaði fyrir Þór í Lengjudeildinni.
Það er ekki annað hægt að segja en að annað mark Þórs í leiknum hafi verið mjög athyglisvert.
Markið skoraði Alexander Már Þorláksson, sóknarmaður Þór, en af einhverri ástæðu slökknaði bara á Bruno Soares, brasilískum miðverði HK-inga.
Hann gjörsamlega hætti bara og fór að benda eitthvað út í loftið. Þetta er vægast sagt furðulegt mark.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Þessi Bruno Soares var greinilega bara mikið að nenna því að spila fyrir Norðan í gær pic.twitter.com/Ap5ml9yp8u
— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) August 15, 2022
Athugasemdir