Fotbolti.net
17.09.13 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Gylfi í liðinu hjá MOTD

Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Þá er komið að úrvalsliði vikunnar í enska boltanum. Þar sem leikirnir tveir sem voru ekki á laugardag enduðu báðir með jafntefli þá leituðum við að þessu sinni í úrvalslið sjónvarpsþáttarins Match of the Day hjá BBC frá laugardeginum.
Okkar maður, Gylfi Þór Sigurðsson, er að sjálfsögðu í liðinu.



1. Tim Howard (Everton)
Varði mest allra markverða á laugardeginum.

2. Kyle Walker (Tottenham Hotspur)
Átti fleiri heppnaðar sendingar en nokkur annar leikmaður í deildinni í laugardagsleikjunum.

3. Nemanja Vidic (Manchester United)
Sem klettur í vörn United sem hélt hreinu. Átti 13 hreinsanir.

4. Matija Nastasic (Manchester City)
Stóð sig vel í vörn City þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Stoke.

5. Danny Rose (Tottenham Hotspur)
Skilaði sínu starfi gríðarlega vel í sigrinum gegn Norwich.

6. Steven Naismith (Everton)
Skoraði sigurmarkið gegn Chelsea og hefur nú skorað fleiri mörk gegn Bláliðum en nokkru öðru liði.

7. Aaron Ramsey (Arsenal)
Leikmaður sem margir höfðu afskrifað átti stjörnuleik gegn Sunderland.

8. Gylfi Sigurðsson (Tottenham Hotspur)
Skoraði sína þriðju tvennu í ensku úrvalsdeildinni en þá fyrstu á heimavelli.

9. Hatem Ben Arfa (Newcastle United)
Skoraði fyrsta mark Newcastle og skot hans bjó til sigurmarkið.

10. Olivier Giroud (Arsenal)
Skoraði og átti stoðsendingu.

11. Wayne Rooney (Manchester United)
Aðeins í annað sinn sem hann skorar beint úr aukaspyrnu í úrvalsdeildinni. Hann hefur nú skorað eða lagt upp 40 mörk í síðustu 44 úrvalsdeildarleikjum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Úrvalslið vikunnar í enska - Gylfi í liðinu hjá MOTD
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.