Enska hringborðið var dregið fram í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í hádeginu í dag. Farið var um víðan völl í umræðu um enska boltann í rúmlega klukkutíma spjalli.
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru umsjónarmenn en gestir voru þeir Kristján Atli Ragnarsson og Orri Eiríksson sem báðir halda með Liverpool en hafa víðtæka þekkingu á enska boltanum.
Efstu lið deildarinnar voru skoðuð. Rýnt var í topplið Arsenal, velt því fyrir sér hvort Manchester City væri að að spila skemmtilegasta bolta Evrópu, skoðað hvort Tottenham sé á réttri leið og hvort eyðimerkurganga sé framundan hjá Manchester United svo eitthvað sé nefnt.
Hlustaðu á enska hringborðið í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir



