Fotbolti.net
24.06.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Nýliðarnir vilja markvörð Man Utd

Radek Vitek í æfingaleik sumarið 2024.

Radek Vitek í æfingaleik sumarið 2024.

Canon

Mynd: EPA

Daily Mail segir að Hull City, nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, séu meðal félaga sem vilja fá Radek Vitek, markvörð Manchester United.

Sagt er að hinir nýliðarnir hafi einnig áhuga; Coventry City og Ipswich Town.
Vitek var öflugur á láni hjá Bristol City í Championship-deildinni á síðasta tímabili þar sem hann hélt hreinu í tólf leikjum.

Vitek er 22 ára Tékki og vill spila reglulega en ekki vera varamarkvörður á Old Trafford, þar sem hann á tvö ár eftir af samningi sínum. United er sagt tilbúið að hlusta á kauptilboð í hann.

Hull ætlar að fá sér tvo markverði og hefur einnig áhuga á að fá Lukas Hornicek frá Sporting Braga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.