Dubravka til Tottenham á frjálsri sölu (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham hefur tryggt sér markvörðinn Martin Dubravka sem kemur frá Burnley á frjálsri sölu.
Þessi 37 ára Slóvaki var áður hjá Newcastle og Manchester United en hann lék 35 leiki fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Dubravka er fjórði leikmaðurinn sem Roberto De Zerbi fær í sumar, á eftir varnarmönnunum Marcos Senesi og Andy Robertson sem komu á frjálsum sölum og Jan Paul van Hecke sem var keyptur frá Brighton á 52 milljónir punda.
Tottenham hefur að auki reynt að kaupa miðjumanninn Sandro Tonali frá Newcastle en 80 milljóna punda tilboði var hafnað.
Guglielmo Vicario, sem hefur verið orðaður við heimför til Ítalíu, og Antonin Kinsky eru markverðir Tottenham. Kinsky endaði tímabilið sem aðalmarkvörður og frammistaða hans var einn af lykilþáttum þess að Tottenham hélt sér í ensku úrvalsdeildinni.

“Spurs is a huge Club with great fans and an amazing stadium.”
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 24, 2026
Watch Martin Dubravka's first interview as a Tottenham Hotspur player exclusively on our official app ????
???? https://t.co/gueT8qJPpI pic.twitter.com/LSfioaYRqg