María fær tveggja leikja bann fyrir höggin


Mynd: Keflavík


Mynd: Keflavík

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur fundað og ákveðið að þyngja refsingu Maríu Ránar Ágústsdóttur sem fékk að líta rauða spjaldið í leik Keflavík gegn HK á sunnudag. Hún fær tveggja leikja bann fyrir hegðun sína.
María lamdi Ragnhildi Sóleyju Jónasdóttur, brást illa við eftir að Ragnhildur sparkaði í Maríu þegar þær lágu í jörðinni.
María lamdi Ragnhildi Sóleyju Jónasdóttur, brást illa við eftir að Ragnhildur sparkaði í Maríu þegar þær lágu í jörðinni.

TENGT EFNI
Myndband: María fékk rautt í Keflavík fyrir að lemja andstæðinginn
„Það var heldur betur hiti í leiknum eins og sást og ég lenti í smá samstuði við hana Ragnhildi. Svo þegar ég ligg sparkar hún frá sér beint í bringuna á mér - viljandi - eða ég gaf mér það allavega," sagði María við Fótbolta.net.
Ragnhildur fékk sömuleiðis rautt spjald fyrir atvikið og fékk hún eins leiks bann.
María verður í banni gegn FHL á laugardag og svo gegn Tindastól 11. júlí.
Ragnhildur fékk sömuleiðis rautt spjald fyrir atvikið og fékk hún eins leiks bann.
María verður í banni gegn FHL á laugardag og svo gegn Tindastól 11. júlí.




