Steve Cotterill, stjóri Shrewsbury, er að jafna sig á sjúkrahúsi eftir að hafa veikst illa af Covid-19. Um tíma var hann á gjörgæsludeild.
Aaron Wilbraham, aðstoðarmaður Cotterill, sagði frá þessu á fréttamannafundi í morgun en Shrewsbury, sem spilar í ensku C-deildinni, mætir Southampton í bikarnum á morgun.
Aaron Wilbraham, aðstoðarmaður Cotterill, sagði frá þessu á fréttamannafundi í morgun en Shrewsbury, sem spilar í ensku C-deildinni, mætir Southampton í bikarnum á morgun.
„Þetta hafa verið erfiðir dagar en ég hef rætt við hann síðustu daga og hann er að verða betri. Hann hefur kastað nokkrum bröndurum fram svo ég veit að það eru framfarir. Það er mikill léttir," segir Wilbraham.
Hópsmit kom upp hjá Shrewsbury og Cotterill var einn af þeim sem smituðust. Liðið hefur enn ekki spilað á þessu almanaksári.
Athugasemdir