Aston Villa er að fá Robin Olsen á láni frá Roma út yfirstandandi tímabil, það er BBC sem greinir frá. Olsen er 32 ára gamall markvörður sem lék með Sheffield United á láni fyrri hluta tímabilsins en missti sæti sitt í liðinu eftir að hafa meiðst.
Svínn var á láni hjá Everton á síðasta mánuði. Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, vill fá reyndan varamarkmann fyrir Emi Martínez.
Svínn var á láni hjá Everton á síðasta mánuði. Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, vill fá reyndan varamarkmann fyrir Emi Martínez.
Olsen lék sjö leiki með Everton á síðasta tímabili og hélt tvisvar hreinu. Hann er þessa stundina aðalmarkvörður sænska landsliðsins.
Olsen gekk í raðir Roma árið 2018 frá FCK í Danmörku. Hann er samningsbundinn Roma fram á sumarið 2023.
Uppfært 17:51: Aston Villa hefur tilkynnt um komu Olsen til félagsins.
Välkommen, Robin Olsen!
— Aston Villa (@AVFCOfficial) January 18, 2022
🇸🇪 pic.twitter.com/k0CKZNGtsF
Athugasemdir