Fotbolti.net
18.07.26 - 22:54
Sölvi Haraldsson

Rúnar pirraður: Dómarar geta ekki farið að vorkenna öðru liðinu

Auglýsing
Rúnar pirraður: Dómarar geta ekki farið að vorkenna öðru liðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var orðinn mjög slæmur í röddinni, öskrandi og æpandi sem var mjög erfitt. Við komum okkur í þetta vesen, við fáum frábær tækifæri til að koma okkur í ennþá betri stöðu.“
Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 Fram
„Þótt þeir misstu mann af velli undir lokin var það ekki að sjá á liðunum. Þeir þrýstu okkur niður völlinn með löngum boltum. Við verðum að teljast heppnir á endanum að þeir hafi ekki náð að pota inn einu.“

Rúnar fékk gult spjald undir lok leiks og ræðir í dágóðan tíma hvað hann er orðin pirraður á því að dómarar dæma ekki eins og láta stöðu leiksins hafa áhrif á ákvarðanir þeirra.

„Það er ekki hægt að byrja vorkenna liðum sem eru að tapa fótboltaleikjum, þú verður að dæma leikinn í 95 mínútur sama hverjir eru að vinna og tapa. En þeir dæmdu þennan leik bara vel og ég þekki þetta dómarateymi vel, maður er búinn að vera í þessu svo lengi. Þetta var allt með mikilli ró þótt ég hafi æst mig og tekið á mig eitt spjald í lokin, þetta er það fyrsta í sumar.“

Þorri Stefán skoraði fullkomlega löglegt mark í seinni hálfleik þar sem hann kom Fram í 4-2 en þá dæmdi Ívar Orri, dómari leiksins, hendi á leikmann Fram en eftir nánari skoðun kemur í ljós að þetta var aldrei hendi. Rúnar kemur inn á það atvik í viðtalinu og nokkur önnur atvik sem hann var óánægður með.

Þegar Rúnar ræðir markið hans Þorra nefnir hann að við erum ekki með VAR í íslenska boltanum og því var hann spurður hvort hann vilji VAR í íslenska boltann.

„Ef það væri notað skynsamlega, mér finnst þetta vera orðið fullmikið. Þetta er aldrei eins og þú veist aldrei hver er í VAR herberginu. En eins og einhver sagði um daginn að þá þurfum við að leyfa dómurunum að dæma leikinn.“

Víkingar töpuðu í dag og munurinn á Fram og Víkingum því orðinn 7 stig, hvernig er stemningin í Framliðinu fyrir komandi leiki.

„Við ræddum það hér fyrir leikinn að við þurfum að eiga góða frammistöðu sjálfir og sjá hvert það tekur okkur. Við erum ekki að horfa í Víking Reykjavík eða toppsætið, það munar 7 stigum sem er svolítið langt. Við höfum nóg með okkur sjálfa að berjast í gegnum þessa leiki og gera betur en í dag. Ef við hefðum tekið réttar ákvarðanir oftar í kjörstöðum hefðum við getað skorað mun fleiri mörk.“

Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.