Olise sló stoðsendingamet Pelé

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski kantmaðurinn Michael Olise bætti stoðsendingamet Pelé á HM þegar hann lagði tvö mörk upp í 6-4 tapi Frakka í bronsleiknum í kvöld.
Olise fékk dauðafæri til að skora sem hann nýtti ekki og skilaði arfaslakri varnarvinnu, en hann endar mótið með sjö stoðsendingar í átta leikjum. Einni stoðsendingu meira heldur en Pelé gerði 1970.
Pelé lagði upp sex mörk og skoraði fjögur er Brassar unnu HM 1970. Hann kom því með beinum hætti að 10 mörkum af þeim 19 sem landsliðið skoraði á mótinu. Olise lagði upp 7 af 20 mörkum Frakka í sumar.
Lionel Messi er stoðsendingahæstur í sögu heimsmeistaramótsins með 12 stoðsendingar.

TENGT EFNI