Gústi Gylfa: Þetta var bara járn í járn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar var mættur með sína menn á heimavöll gegn FH í dag í undanúrslitaleik Lengjubikars karla í dag. Stjörnumenn töðuðu leiknum 1-3 og þetta hafði Ágúst að segja um leikinn.
„Þetta var eiginlega bara járn í járn, svona allavega í 80 mínútur en svo ná FH-ingar að skora 2 mörk á okkur. Spiluðu bara mjög vel út á vellinum FH-ingarnir og hrós til þeirra, við náðum ekki alveg okkar leik okkar frammistöðu en samt alveg ágætlega sáttur við leikinn í heild sinni. Fúlt að hafa ekki farið í úrslitaleik í Lengjubikar en stutt í æfingaferð hjá okkur og við ætlum að gíra okkur þar upp og koma enn sterkari til leiks."
Mikið af ungum leikmönnum í dag, má búast við sama í sumar?
„Já við reiknum með því. Strákarnir eru að standa sig frábærlega vel og líka þeir eldri þannig það er góð samsetning í liðinu. Við höldum því áfram og þetta er okkar setup, við erum með frábært unglingastarf þannig við höldum því áfram og byggjum ofan á það."
Hver er staðan á Eggert, Daníel og Oliver Haurits?
„Hún er bara ágæt. Ég reikna með þeim á fullu í æfingaferðinni sem verður eftir viku."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




