Fotbolti.net
19.06.17 - 21:59
Ármann Örn Guðbjörnsson

Ejub Purisevic: Mig langar bara að taka dansspor

Auglýsing
Ejub gat verið sáttur með sína menn í kvöld

Ejub gat verið sáttur með sína menn í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ejub Purisevic og hans lærissveinar í Víking Ólafsvík náðu loksins að knýja fram sigur á heimavelli í deild, en það hafði ekki gerst síðan þann 26. júní árið 2016 þegar liðið sigraði Þrótt Reykjavík.

Ejub var að vonum himinlifandi þegar lokaflautið gall og eins og hann sagði þá langaði honum bara að stíga dansspor.
\"mér langaði bara að taka dansspor eins og Jón Rúnar en ég er bara ekki eins góður og hann og ætla því að sleppa því\" sagði Ejub léttur.



Eric Kwakwa var að spila sem nokkurskonar sópur fyrir framan öftustu línuna og fékk hann gult spjald snemma leiks fyrir groddaralega tæklingu. Ejub var samt ekki hræddur um að Ghana maðurinn væri í einhverri hættu á að fá rauða spjaldið



\"Ég var ekkert hræddur. Þú verður að leggja traust á leikmennina og leyfa þeim að vinna úr sínum vandamálum. Ef þú verður hræddur og ætlar að bregðast við með skiptingum þá þarftu að fara gera sex til sjö skiptingar í leik\"



Viðtalið má sjá í heild sinni hér í tækinu fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.