Fotbolti.net
19.10.26 - 18:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ronaldo settur í 30 daga bann

Ronaldo settur í 30 daga bann
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska fótboltasambandið hefur dæmt Cristiano Ronaldo í 30 daga bann og honum er gert að borga 255 evru sekt fyrir að yfirgefa herbúðir liðsins í síðasta landsliðsglugga.
Portúgalska sambandið setur Ronaldo í bráðabirgða bann
TENGT EFNI

Portúgalska sambandið setur Ronaldo í bráðabirgða bann

Ronaldo yfirgaf herbúðir Portúgals í Kaupmannahöfn fyrir leik gegn Danmörku í Þjóðadeildinni fyrr í þessum mánuði. Hann sakaði Jorge Jesús um að hafa tvisvar brotið loforð sín eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Noregi.

Portúgalska sambandið sendi frá sér yfirlýsingu en það kom ekki fram hvað bannið feli í sér og hvort tími sem hann hefur þegar afplánað samkvæmt bráðabirgðabanni myndi teljast með í 30 daga refsingunni.

Portúgal mætir Danmörku heima þann 14. nóvember og Wales úti 17. nóvember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.